11janúar

föstudagur

Já maður lifandi, maður verður að blogga meira hérna........ seinustu dagar hafa farið í köflóttan svefn vegna þess að dóttir mín sefur bara ekkert at all!!! veit hreinlega ekkert hvað ég á að gera....ég og Hinrik erum á vöktum hérna heima til að reyna að tjónka við henni en allt kemur fyrir ekki nema hún sé sett út í vagn en eins og fólk veit þá er það ekki hægt meðan við sofum inni, þetta hlýtur að lagast í framtíðinni;)

Annað hefur svo sem ekkert drifið á mína daga, mér finnst ferlega hallærislegt að vera ekki í skólanum , sem sagt að keyra fram hjá vma og hugsa til þess að ég þurfi aldrei að fara þangað aftur!!!;) vííí!!!!

Helga ætlar að koma til mín í dag loksins......jibbí!!;) hlakka geggjað mikið til hun er pottþétt með eitthvað krassandi handa mér hehe....;)

en meira seinna
bless bless
11. janúar 2008 klukkan 07:24
Guðrún Fanney Einarsdóttir
3 athugasemdir
02janúar

gleðilegt ár:)

Jæja þá er nýtt ár runnið í garð og ég verð að segja að þetta er held ég besta ár sem ég hef lifað þannig lagað fyrir utan að ég var með morgunógleði í fimm mánuði og grindagliðnun hina fjóra hehe......og já ó var líka í sumarskóla hehe.....en á endanum eignaðist ég dýrmætasta gimmsteininn minn hana Kristínu Andreu sem eins og ég hef áður sagt 16. nóvember. Ég keypti mér einnig mína fyrstu íbúð þetta árið 60 fm2 tveggja herbergja íbúð hérna í Smárahlíðinni á Akureyri, Við Hinrik fluttum síðan´inn í hana 15. des síðastliðin og mér finnst þetta ÆÐISLEGAST Í HEIMI að vera út af fyrir okkur og kem sjálfri mér nokkuð á óvart með hversu dugleg ég er í húsverkunum gjörsamlega HATA skít ;)

Svo finnst mér bara merkilegt nokk að Hinrik sé ennþá með mér hehe....miðað við hversu ógeðslega viðskotaill ég var á meðgöngunni og þá staðreynd að ég þyngdist um rúmmlega 25 kíló á meðgöngunni en hef nú samt tekið nokkuð af mér , en það verður bara í staðinn svitnað ægilega í ræktinni í febrúar;)

haha..... verð líka að deila með ykkur einu, dóttir mín er mjög þver eins og mamma sín og stundum vill hún bara vera á vökunni og þá er EKKERT hægt að tjónka við henni nema að hún þreytist loksins á því að gráta og grætur sig í svefn, en það er líka eftir nokkra klukkutíma sem hún gefur sig og það er ekkert grín!!! Ég og Hinrik höfum þá brugðið á það ráð að þegar hún lætur svona þá klæðum við hana í útigallan þann sama og við klæðum hana í þegar hún á að fara út í vagn, og viti menn hún er sofnuð innan mínútu, og þetta er ekki lygi!!!! svo látum við hana komast í fasta svefn og klæðum úr útigallanun og setjum hana í vögguna sína hehehe........;) en hún er yndisleg af öllu öðru leyti!!;)

Hvað ætli það séu margir foreldrar sem hafa þurft að bregða á svona ráð????? ........................... það er spurning;)


Hinrik ástin mín í góðum gír;)


fullkomnar dóttir mín;)

02. janúar 2008 klukkan 05:23
Guðrún Fanney Einarsdóttir
4 athugasemdir
27desember

Gleðileg jól

Jæja þá er komin tími á blogg;) Það er mikið búið að gerast síðan seinast!! 

1. Ég útskrifaðist loksins úr framhaldsskóla;) s.s. 20. desember 2007 varð ég stúdent úr Verkmenntaskólanum á Akureyri;) djöfull var ég fegin og hreinlega veit ekkert hvað ég á að gera af mér eftir áramót!!! hehe....nema að sjálfsögðu að njóta tímans með dóttur minni;) Mamma og pabbi voru alveg að rifna út monti þegar ég tók á móti skjalinu mínu og setti síðan upp húfuna mína;) þannig ég er svona komin nær því takmarki að komast í hóp menntamanna;)

2. Dóttir mín fékk nafn einnig 20.des, heimaskírn ekkert smá falleg athöfn;) Prinsessan fékk nafnið Kristín Andrea Hinriksdóttir, bara svona út í loftið ekki eftir neinum. Þannig við slógum öllu upp í eina veislu s.s. stúdenta og skírnaveislu;)

3. Síðan eru það sjálf jólin. Eyddi þeim og er ennþá hjá tengdó á Grenivík, búið að vera æðislegur tími. Algjör leti og afslöppun. Síðan eru það bara áramótin hjá mömmu og pabba á Akureyri;)

Kem með meiri fréttir seinna kannski bara á nýja árinu
tja tja!!!!


Við unga parið og nýju foreldrarnir!!



verið að gefa henni nafn;)


Kristín Andrea Hinriksdóttir sætasta prinsessan;)


P.S. SETTI INN MYNDIR AF ÚTSKRIFITNNI OG SKÍRNINNI UNDIR MYNDIR!!
27. desember 2007 klukkan 19:10
Guðrún Fanney Einarsdóttir
1 athugasemd
11desember

fokking snilld!!

Jæja þá er það ljóst ég er búin að ná þýsku 403 fékk þokkalega sjöu;) geri aðrir betur!! og búin að ná ensku 503 líka á eftir að fá út úr hinu en ég veit ég næ því alveg;) Þannig við erum að tala um útskrift beibí;) rígmontinn núna;) Erum út á Grenivík hjá tengdó, hún er alveg svaka glöð að vera með litlu prinsessuna hjá sér;) svo eru bara fluttningar á morgun
allavega ekkert meira í bili
bæbæ


litla prinsessan sofandi.......sætust!!!

11. desember 2007 klukkan 20:17
Guðrún Fanney Einarsdóttir
13 athugasemdir
05desember

dummdummmdödömmmm!!!!!!!

Jæja þá er ég búin að lesa í allt kvöld og nótt fyrir þýsku 403 tók próf áðan í málfræði svona æfingapróf og fékk bara tvær villur vííí!!!! þannig ég held hreinlega að ég sé á réttri hillu;) Seinustu nætur hafa sígarettur ásótt mig í svefni hehe.....held að það stafi af því að það er prófatíð;) Er vön að svæla í mér nokkrum mellum þegar maður er stressaður, hef samt ekkert reykt í marga mánuði;) ógó stolt af mér, hélt að ég væri manneskjan sem gæti ALDREI hætt að reykja hehe...... þannig vona að ég fari ekki að byrja á þeirri vitleysu aftur!! EN anyway, pabbi er byrjaður að ókyrrast og er alltaf upp í íbúðinni að spá og spögulera og getur ekki beðið eftir að mega byrja að mála hehe...;) ég er róleg fram á föstudag!!
Nafnavalið á litlu dömuna er að ganga eitthvað núna held hreinlega að ég og Hinrik séum búin að finna nafn á hana, að SJÁLFSÖGÐU gef ég EKKERT upp fyrr en hún er skírð, sama hvort þið séuð bestu vinir og bestu vinkonur mínar hehe...;)
05. desember 2007 klukkan 04:00
Guðrún Fanney Einarsdóttir
6 athugasemdir
02desember

2.desember;)

Þessir dagar einkennast af stressi:( þoli ekki að geta notið tímans með dóttur minni til fulls, spurningin er alltaf sú sama, ætli í útskrifist???????? ég ætla rétt að vona það, ég á að fara í eitt próf á miðvikudaginn í þýsku 403 og á föstudaginn í þýsku 303. og er núna að gera rigerð í sálfræði 333!!! ég er á þvílíkum haus og stressi, örugglega dett niður dauð á föstudaginn bara. Erum búin að fá íbúðina okkar en byrjum ekki að gera neitt fyrr en ég er búin í prófum!! en ætlum samt að flytja fyrir jól hehe.....;)
Í gær fórum við heim til Grenivíkur að gera laufabrauð, ég var aðallega í því að liggja og láta mér líða vel hehe........alltaf gott að hafa það gott;)
allavega hef ekkert að segja í bili en læt fylgja hér nokkrar myndir af sætustu stelpunni minni í heimi;)

litla daman í baði;)


steinsofandi;)


á leiðinni út;) krútt!!!

kúra hjá pabba sinum;)
02. desember 2007 klukkan 22:17
Guðrún Fanney Einarsdóttir
6 athugasemdir
27nóvember

11 daga gömul í dag;)

Já mikil ósköp hvað þetta er öðruvísi líf að vera móðir!! hehe....það er yndislegt en í senn dáltið erfitt allavega fyrst um sinn, litla daman mín er nefnilega mjög mikið fyrir að vaka á nóttunni og hún sefur ekki meira en í 3 tíma í senn!! maður er orðin langþreyttur þangað til ég og Hinrik ákváðum að hafa vaktaskipti!! En nú er ég að klára skólann þannig Hinrik er þreytt húsmóðir er í þvi að sinna prinsessunni, og hún er nú orðin góðu vön og er nú dugleg við að láta pabba sinn finna fyrir sér og láta hann stjana við sig;) Við fáum íbúðina okkar á laugardaginn get ekki beðið;) Og svo er laufabrauð hjá tengdó á laugardaginn líka, hlakka mjög mikið til því það er svo langt síðan ég gerði laufabrauð;) Hef svo sem ekkert meira  að segja í bili;) KVITTIÐ!!
bæjó
27. nóvember 2007 klukkan 12:28
Guðrún Fanney Einarsdóttir
3 athugasemdir
20nóvember

Ég er orðin móðir;)

Já ég er sko orðin móðir;) það eru yndisleg forréttindi og yndislegt hlutverk í lífinu. Hún litla prinsessan mín kom í heiminn þann 16. nóvember 2007 kl. 05:30;) hún var 16 merkur og 53 cm. Hún er rosalega falleg og vil ég halda það að ég eigi heilmikið í henni, og Hinrik er reyndar greinilega faðirinn;) Eina sem hún gerir er að sofa, og borða það er nú ekki mikið meira, nema horfa á mömmu sína áður en hún sofnar aftur eftir matinn;) Mér langar að þakka öllum sem hafa komið og heimsótt mig og kíkt á gullið og öllum sem hafa sent mér kveðjur, skiptir mig svo ofboðslegu máli;) kem með aðra færslu von bráðar;) getið séð mynd af henni inn á www.bumba07.barnaland.is þetta kerfi hér er eikkað tregt!!!
allavega KVITTIÐ;)

20. nóvember 2007 klukkan 15:22
Guðrún Fanney Einarsdóttir
6 athugasemdir
12nóvember

40 vikur og tveir dagar!!;)

Jæja þá er að brjóta upp á þetta blogg, í staðinn fyrir eikkað óléttukjaftæði, sem btw er ekkert að frétta af :/ þá ákvað ég að setja þessar spurningar inn og athuga hvursu margir nenna að svara þessu!!;)


ein setning sem lýsir mér?
hvar hittumst við?
hverslu lengi höfum við þekkst?
drekk ég?
hvað er uppáhalds áfengið mitt?
reyki ég?
ef já. þá hvað?
er ég glöð manneskja?
er ég góð eða vond manneskja?
hvað hugsaðiru fyrst þegar þú hittir mig?
hvað finnst mér skemmtilegast að gera?
hvern elska ég meira en allt?
er ég findin/nn?
er ég ástfangin/nn?
hefurðu fengið mig til að brosa, ef svo er.. hvernig?
hvernig tónlist fíla ég?
hefurðu séð mig gráta?
get ég sungið?
hvað er það besta við mig?
er ég feimin/nn?
er ég uppreisnarseggur eða fylgi ég reglunum?
hef ég einhverja spes hæfileika?
hvaða týpu myndirðu flokka mig sem.. emo, nörd, goth, hippi, trefill, bully...?
uppáhalds maturinn minn?
get ég eldað?
hvað kallarðu mig?
hver er uppáhalds minning þín um mig?
hver er minn versti ávani?
álíturðu mig vin þinn.. ef svo hversu góðann?
er ég frekja?
hefur þig dreymt mig?
ef ég og þú myndum lenda á eyðieyju og ég mætti bara taka einn hlut með mér, hvað myndi ég taka?
er ég trúuð/aður?
er ég fjölskyldu manneskja?
hversu marga krakka vil ég eignast, ef einhverja?
hver er besti vinur/vinkona minn/mín?

12. nóvember 2007 klukkan 15:49
Guðrún Fanney Einarsdóttir
7 athugasemdir
09nóvember

40 vikur

Já gott fólk, á morgun er áætlaður dagur fæðingu litlu dúllunnar minnar, en ég vaknaði núna áðan kl. sex með túrverki dauðans, þannig ég fór á fætur og VONANDI er eitthvað að ske;) hehe....eg var að hlæja að því í gær að það væri ekkert gaman að lesa bloggið mitt því ég hefði ekkert um annað að tala en óléttuna og bjúginn hahaha...... ég lofa skemmtilegra umræðuefni seinna;) kemst bara ekki mikið meira að hjá mér eins og stendur;) læt vita seinna ef eitthvað erað gerast;)

varð að láta fylgja mynd af litlu sætu frænku minni, henni Elínbet, algjört hjartagull, hlakkatil að hitta hana;)

KVITTIÐ TAKK;)
09. nóvember 2007 klukkan 07:19
Guðrún Fanney Einarsdóttir
3 athugasemdir

Klukkan

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Guðrún Fanney Einarsdóttir
  • Netfang: guggsimaxi@hotmail.com
  • Staður: Akureyri
  • Símanúmer: 8453554
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: nemi, móðir og heimavinnandi húsmóðir;)
  • Hjúskaparstaða: í sambúð með Hinriki Haukssyni frá Grenivík ('88)
  • Um mig: Ég er 23 ára snót sem bý á Akureyri. Er komin með allan pakkann:) íbúð, station bíl og á yndislega fallega stelpu sem fæddist 16. nóvember 2007;) áhugamálin mín eru af skornum skammti: ferðast, horfa á íþróttir, kærastinn, vinirnir svo finnst mér mjög gaman af því að fara út að skemmta mér;) geri samt eikkað minna af því þessa dagana;)
  • Annað: AÐRAR SíÐUR: myspace.com/guggsi bumba07.barnaland.is

Könnun

Er Vörutorg málið??

Niðurteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...